Við erum afar ánægð með það að geta í dag, í samstarfi við félaga okkar OneHope, tilkynnt um að Biblíuappið fyrir börn er nú fáanlegt á ÍSLENSKU. Nú hafa fleiri börn en nokkru sinni áður tækifæri til að upplifa Biblíuna á eigin spýtur.
Auðvelt er að skipta á milli tungumála, undir stillingum appsins:
- Gakktu úr skugga um að þú hafir uppfært appið þitt í nýjustu útgáfu.
- Opnaðu appið og ýttu á tannhjóls-táknið () til að opna Stillingar.
- Ýttu á Tungumál og veldu það tungumál sem þú vilt.
Hljóðið mun nú færast á það tungumál og allur texti mun einnig birtast á því tungumáli!
Endilega hjálpaðu okkur að fagna þessum frábæru fréttum!
Um Biblíuappið fyrir börn
Biblíuappið fyrir börn er þróað í samstarfi við OneHope, og er frá YouVersion, framleiðenda Biblíuappsins. Biblíuappið fyrir börn er hannað til að veita börnum ánægjulega upplifun af Biblíunni og hefur þegar verið sett upp á yfir 79 milljón Apple, Android og Kindle tækjum og það er alltaf algjörlega ókeypis. Krakkar hvaðanæva að úr heiminum njóta nú Biblíuappsins fyrir börn, á 65 tungumálum – og nú er ÍSLENSKA þar á meðal!
Þessi færsla er einnig aðgengileg á: Enska Myanmar búrmneska (Zawgyi) Serbneska Armenian